Við vorum í einkasamkvæmi með sirca 20 manns. Humarsúpa, Humar og drykkir, allt frábært. Kósý staður, fyrirmyndar þjónustu og það var ekkert mál að redda aðrar máltíð fyrir gest með skelfiskofnæmi. Munum klárlega mæla með staðnum og koma aftur.
Inga
+4
Fjöruborðið resturant hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mér, staðsettur niður við sjóinn á Stokkseyri. Það tekur 15 mín. í bíl frá Selfossi. Humarsúpan er aðalsmerki staðarins og humarinn er just to die for. Þjónustan er yfirleitt góð en mætti vera betri,einnig væri hægt að poppa upp stemningu og andrúmsloft með smá yfirhalningu. Eins og td. skipta út borðbúnaði og gera staðinn meira kósý. Nota Íslenska hönnun, sem gæti gert svo mikið fyrir staðinn.
Ásrún Karls
+5
Rosalega góður matur! Humarsúpan er einstök og starfsfólkið er yndislegt.
An error has occurred! Please try again in a few minutes