Tinna Bjarnadóttir
Alltof dýrt miðað við gæði. Við fengum nánast hrátt kjöt og báðum þau um að elda það betur. 10 mínútum seinna fengum við nánast sama kjötið aftur til baka, hrátt og kalt. 12 ára frænka mín fékk loks matinn sinn þegar næstum allir voru búnir að borða. Ég labbaði svöng út. Við fengum léglegan afslátt í lok kvölds. Þangað fer ég aldrei aftur.
Iris Jonsdottir
Besti bröns á veitingastað að mínu mati. Góð þjónusta.
Hermann Helguson
Alltof fáir þjónar miðað við fjölda gesta. Þjónustan tók því of langan tíma. Maturinn fremur bragðlaus og matseðillinn samræmist ekki consepti staðarins. Að bjóða upp á nautasteik með frönskum, en selja rándýr rauðvín með passar ekki saman mínu mati. Staðurinn virðist vera mjög fínn en maturinn ekki á sama plani. Tel að menn þyrftu að endurskoða matseðil og gæði réttanna.
Lilja Þorsteinsdóttir
Fengum okkur miðdegiste “high tea” sem við pöntuðum fyrirfram. Biðum í 40 mín eftir meðlætinu sem var mjög gott. Fengum hálf volgt tevatn í einum tekatli til að byrja með en vorum með tvær tegundir af tei. Maður reiknar með að fá sjóðandi vatn í tekatli sem hægt er að brugga te í þegar maður sækir heim veitingastað með þetta orðspor. Teið borið fram í kaffibollum, of litlum fyrir te. Munum ekki endurtaka þetta enda áttum við von á betri þjónustu og meiri gæðum.
Áslaug Ásgeirsdóttir
Borðaði á laugardagskvöld með vinum. Varð fyrir vonbrigðum. Dýr reikningur og ekki með innistæðu.
Guðmundur Fannar Sigurbjörnsson
Fór á jólahlaðborð og maturinn var frábær, 300 manns í salnum og aldrei þurfti maður að bíða í röð
Parketslípun Og Lagnir
Skelfilegur hamborgari í dag...... Þurr og bragðaðist eins og tví eldaður.....
An error has occurred! Please try again in a few minutes