Rakel
Stór vonbrigði & engan vegin í takt við verðið. Þessi staður er ekki lengur það sem hann var. Við biðum lengi eftir forréttum en aðeins tveir úr hópnum voru með forrétt, það kom ekkert brauð eða neitt fyrir hina sem biðu á meðan & okkur tjáð að við gætum keypt það sérstaklega. Þegar um hálftími var liðin frá því forréttirnir kláruðust vorum við farin að ókyrrast & fengum þá að vita að enn væru a.m.k. 15 mín í matinn! Þau tóku sig þá til & komu með hann fyrr en steikurnar höfðu þá verið sneiddar niður & lambakjötið hálf hrátt, eflaust til að flýta fyrir eldun en þetta var vægast sagt glatað. Við afþökkuðum að lokum bið eftir eftirréttum & óskuðum þess bara að hafa valið annan stað. Á Grillmarkaðinn förum við aldrei aftur.
Hrafnhildur L. Runólfsdóttir
Ótrúlega bragðgóður matur, alveg undursamlega gott!
Kristján Ari
Fór með erlendum viðskiptafélaga ásamt öðrum úr fyrirtæki mínu að borða hér - pöntuðum hópseðil; það var brýnt fyrir þjónunum eftir 1 og hálfan tíma (þegar við vorum einungis búin að fá tvo forrétti) að þetta þyrfti að koma hraðar á borðið - það var brýnt aftur tæpum klukkutíma seinna þegar næsti réttur kom.
Þrem tímum frá því að við mættum þá gefst sá erlendi upp og fer til að ná flugi.
Á þrem tímum þá höfðum við fengið 3/6 réttum (ef ég man rétt hve margir réttir það voru í heild)
Ég var tregur að fara til að byrja með því síðast þegar ég kom þá pantaði ég dry-aged rib eye hjá þeim (dýrasti rétturinn á tímanum) sem bragðaðist úldið - ég neyddi þriðjung af steikinni niður og setti hana til hliðar, þjónninn hafði ekki einu sinni fyrir því að spyrja hvernig var.
Í bæði skiptin var greitt fullt verð fyrir alla rétti.
Gunnar Sigurbjornsson
Mjög gott
Inga
Þessi staður toppar flesta veitingastaði í Reykjavík, hann er svo fallega innréttaður og nýtískulegur að allir sem koma hingað hugsa...hingað kem ég pottþétt aftur. Maturinn er svo dásamlega skemmtilega fallega borinn fram ásamt því að andrúmsloftið hér er blandað rómantík og sjarma sem sjaldan sést. Mæli eindregið með Grillmarkaðnum sem er á besta stað í miðbæ Reykjavíkur. Hér færð þú augnkonfekt og kítlaða bragðlauka sem aldrei fyrr. Þvílík dásemd.
Hrafnhildur Heimisdóttir
Smakkseðilinn var æðislegur og vel þess virði. Allt mjög gott.
Eirikur Briem
Staðurinn var þéttsetinn. Vorum á tveggja manna borði en okkur leið eins og fólkið á næstu 2 borðum sætu með okkur við borð. Drykkirnir sem við pöntuðum fyrir matinn komu þegar maturinn var kominn á borðið. Mér fannst líka þjóninn reka á eftir okkur að klára og spurði til dæmis hvort við vildum nokkuð eftirrétt. Maturinn var hins vegar góður sem er ástæðan fyrir 3 stjörnum í stað 2 stjarna.
Björn Emil Traustason
Gott að heimsækja
An error has occurred! Please try again in a few minutes