Sluurpy > Restaurants in Mosfellsbaer > Barion

Review Barion - Mosfellsbaer

Hilmar Gunnarsson
Góður matur og gott andrúmsloft. Starfsfólkið næs og steikarsalatið himneskt. Mæli með👍
Alex Þór Sigurðsson
Allar pantanir voru í rugli. Öll borð í kringum mig ásamt mínu fengu vitlausar pantanir á borðið. Annar fékk ekki matinn sinn á meðan hinir a borðinu fengu. Svo kvartaði hann yfir því og þjóninn sagði já æj en er maturinn ekki góður og labbaði hratt í burtu án þess að heyra hvað hann hefði að segja. Gef 1 stjörnu þar sem maturinn var fínn. Kem ekki aftur fyrr en þjónustan lagast
Helga Björg
Mjög góður matur þjónustan uppá 10
Birgir Halldórsson
Svo æðislegur þessi Jóhannes í afgreiðslunni
Elentinus Margeirsson
Komum 10 saman á staðinn, 3 fjölskyldur. Fyrsta fjölakyldan var búin að borða þegar næsta fékk matinn. Eftir 50 mín bið kom þjónninn og spurði hvað við hefðum pantað.... Svo loks kom maturinn og hef ég sjaldan smakkað bragðlausari rif. En maður brennir sig bara einu sinni.
Arnar Ragnarsson
Ömurleg þjónusta, klukkutíma bið átti að 15 mín, ekkert látið vita, fer ekki hingað aftur.
Logi Jónsson
Tókum með okkur heim rif úr öðrum heimi og kjúklingasalat mömmu þetta var þvílíkt gott og verður endurtekið fljótlega😊❤️❤️ Takk fyrir matinn!
Einar Omarsson
Sjaldan orðið fyrir jafn miklum vonbrigðum, hef heyrt svo góða hluti um þennan stað (mega eiga það að barnamaturinn var flottur) pantaði hinsvegar ofnbakaðan þorsk fyrir mig og fékk upphitaðan þorsk frá ég veit ekki hvaða degi og hann var alveg ískaldur inní með óskoluðu spínati sem hliðar salat, sorry en þetta er ekki boðlegt hefði frekar átt að hita afganga heima...
Burger Cakes Sandwiches
Share on WhastApp
Share on Facebook
Browse the menu
Add review